PLÁNETUR & STJÖRNUMERKI
Þegar einhver segist vera eitt af stjörnumerkjunum tólf, t.d. Sporðdreki, þá er það svar venjulega byggt á því í hvaða stjörnumerki sólin var þegar viðkomandi fæddist. Það sem margir vita ekki er að við erum fleiri en eitt stjörnumerki. Þetta er hægt að sjá í fæðingarkorti, en það er byggt á nákvæmri dagsetningu, tímasetningu og staðsetningu fæðingar og er í raun nákvæm eftirmynd af himninum á því augnabliki sem við komum í heiminn. Við höfum öll okkar eigin einstaka fæðingarkort, þar sem hver pláneta er stödd í einu af stjörnumerkjunum tólf. Samkvæmt stjörnuspekinni hefur staðsetning allra þessara pláneta áhrif á hver við erum.

Pláneturnar
Tunglið, sólin, rísandinn og reikistjörnurnar í sólkerfinu segja öll til um mismunandi þætti í lífi okkar og persónuleika. Til dæmis segir tunglið til um innra tilfinningalíf okkar, Venus segir til um hvernig við tengjumst öðrum, og rísandinn segir til um það hvernig við birtumst öðrum við fyrstu kynni.

Plánetur
Sólin
Tunglið
Rísandi
Merkúríus
Venus
Mars
Júpíter
Satúrnus
Úranus
Neptúnus
Tákn
Lýsing
☉
Segir til um grunnpersónuleika þinn, hvað þér líkar við, lífsorku, meðvitund, og tilgang. Segir einnig til um þær leiðir sem þú notar til að fara í gegnum lífið. Staðsetning sólarinnar gefur einnig til kynna meðfædda hæfileika og veikleika.
☽
ASC
Tunglið segir til um þitt innra sjálf, tilfinningar og þrár. Það segir til um hvar og hvernig þér líður best, tilfinningalíf þitt, þægindaramma og það hvenær þú finnur fyrir öryggi eða kvíða. Það hefur mikil áhrif á sambönd við annað fólk og hvernig þú tengist fólki.
Rísandinn segir til um hvaða “grímu” þú setur á þig og hvernig þú birtist öðrum/ hvernig aðrir sjá þig. Einkenni merkisins sem rísandinn þinn er í eru þau sem þú sýnir fólki oftast við fyrstu kynni. Rísandinn hefur einnig áhrif á líkamlegt útlit þitt.
☿
Segir til um hvernig þú hefur samskipti, lærir, tjáir þig og hugsar. Segir einnig til um hvað vekur áhuga þinn og hvers konar upplýsingum, þekkingu og hugmyndum þú safnar og miðlar.
♀
Segir til um hvernig þú tengist öðrum, hverja og hvernig þú elskar, hvað veitir þér ánægju. Hefur áhrif á gildi og þrár þínar hvað varðar ást, rómantík, nánd, og kynlíf.
Segir til um hvernig þú hegðar þér sem kynvera. Hvernig þú nálgast verkefni. Hvenær þú finnur fyrir orku, hvatningu, sprengikrafti og ástríðu. Segir einnig til um hvernig þú tekst á við reiði og árásargirni.
